• Medientyp: E-Artikel
  • Titel: Þátttaka í sjálfboðastarfi á Íslandi
  • Beteiligte: Hrafnsdóttir, Steinunn; Jónsdóttir, Guðbjörg Andrea; Kristmundsson, Ómar H.
  • Erschienen: Institute of Public Administration and Politics - Icelandic Review of Politics and Administration, 2014
  • Erschienen in: Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla
  • Sprache: Nicht zu entscheiden
  • DOI: 10.13177/irpa.a.2014.10.2.12
  • ISSN: 1670-679X; 1670-6803
  • Schlagwörter: Development ; Geography, Planning and Development
  • Entstehung:
  • Anmerkungen:
  • Beschreibung: <jats:p>Í greininni er fjallað um þátttöku Íslendinga í sjálfboðastarfi. Rannsóknin sem byggir á gagnasafni Evrópsku lífsgildakönnunarinnar (EVS) frá 1990-2010 er sett í samhengi við alþjóðlega fræðilega umræðu um sjálfboðaliða og þátttöku í sjálfboðastörfum. Um þriðjungur Íslendinga 18 ára og eldri tók þátt í sjálfboðastörfum 2009-2010, örlítið færri en 1990, 75% voru í félögum og er það svipað hlutfall og 1990. Flestir vinna fyrir íþrótta- og tómstundafélög og félagsaðild í þeim er einnig mest. Því næst koma velferðarfélög en hlutfallslega mest hefur dregið úr sjálfboðastörfum á sviði velferðarmála. Karlar eru mun líklegri en konur til að sinna sjálfboðastörfum hjá íþrótta-og æskulýðsfélögum en í öðrum sjálfboðastörfum er ekki munur á kynjum. Algengara er að fólk eldra en 50 ára sinni sjálfboðastörfum en yngra fólk, sérstaklega fyrir velferðarfélög. Háskólamenntaðir eru líklegastir til að sinna sjálfboðastörfum. Staða á vinnumarkaði hefur áhrif hvort fólk vinnur sjálfboðastörf, sérstaklega meðal íþrótta-og æskulýðsfélaga. Gift fólk er í öllum tilvikum líklegra en aðrir hópar til að stunda sjálfboðastörf og þeir sem búa í dreifbýli eru einnig líklegri en þeir sem búa í þéttbýli til að sinna slíkum störfum. Niðurstöðurnar eru að meginstefnu sambærilegar niðurstöðum erlendra rannsókna og veita mikilvægar upplýsingar um þátttöku í sjálfboðastarfi á Íslandi og þróun hennar í alþjóðlegu samhengi. </jats:p>
  • Zugangsstatus: Freier Zugang