• Medientyp: E-Artikel
  • Titel: Hefur umhverfisvitund aukist? Viðhorf Íslendinga til umhverfismála og stóriðju 1987-2017
  • Beteiligte: Bjarnadóttir, Sóllilja; Sæmundsdóttir, Inga Rún; Ólafsdóttir, Sigrún; Árnason, Þorvarður; Jónsdóttir, Guðbjörg Andrea
  • Erschienen: Institute of Public Administration and Politics - Icelandic Review of Politics and Administration, 2021
  • Erschienen in: Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla
  • Sprache: Nicht zu entscheiden
  • DOI: 10.13177/irpa.a.2021.17.1.3
  • ISSN: 1670-679X; 1670-6803
  • Schlagwörter: Development ; Geography, Planning and Development
  • Entstehung:
  • Anmerkungen:
  • Beschreibung: <jats:p>Vægi umhverfismála í íslenskri þjóðmálaumræðu hefur aukist á undanförnum áratugum. Fram til þessa hefur ekki verið unnt að kanna með empirískum hætti hvort þessi aukna umræða endurspegli þróun í átt til breyttra viðhorfa á meðal íslensks almennings. Gögn Íslensku kosningarannsóknarinnar (ÍSKOS) sýna skýrar langtíma breytingar í viðhorfum til umhverfismála á síðastliðnum þrjátíu árum (1987-2017). Hér er fjallað um niðurstöður tveggja spurninga úr þeirri könnun sem varða annars vegar viðhorf til þess að aðgerðir í umhverfismálum ættu að hafa forgang fram yfir aðgerðir til að auka hagvöxt og hins vegar viðhorf til þess hvort ríkisstjórnin ætti að leggja mikla eða litla áherslu á orkufreka stóriðju. Í báðum tilvikum sjást hliðstæðar breytingar yfir tíma; hlutfall þeirra sem vilja leggja áherslu á umhverfismál eykst ár frá ári (með einni undantekningu strax eftir Hrunið) samhliða því að hlutfall þeirra sem vilja að ríkisstjórnin leggi mikla áherslu á stóriðju lækkar. Niðurstöður síðustu mælinga (2017) voru þær að 65% svarenda vildu leggja áherslu á umhverfismál fram yfir hagvöxt og 80% vildu að ríkisstjórnin legði litla áherslu á orkufreka stóriðju. Þeir sem styðja vinstri flokka voru líklegri til að leggja áherslu á umhverfismál á meðan stuðningsfólk hægri flokka var líklegra til að leggja áherslu á stóriðju.</jats:p>
  • Zugangsstatus: Freier Zugang